<


Linkarnir okkar
Dagbækur

Arnar Smári

Auður, Emelía og Anna Eir

Eiríkur Freyr

Hrönn og Georg

Sólveig Birta

Þóra, Hákon og Vigdís Tinna

Birgitta Rún NÝTT

Margrét Vilborg

Edda, Gummi, Ýr og Elísabet

Kristín Rósa



Aðrar síður

BMC
Heimasíða labbsins

Uppsala
Uppsala Universitet


Skype






Teljari:
Site Meter
baby
babies12.6.07
Arna ritar frá Svíþjóð 4:00 e.h.
Jibbííííi Haukur Freyr er 14 mánaða í dag. Sem þýðir að hann er jafngamall og stóri bróðir hans fékk litla bróðir.
Haukur er ekki farinn að labba sjálfur en labbar meðfram húsgögnum og þegar maður leiðir hann með einni hendi. Svo er hann farinn að þjálfa upp apaskriðið til að meiða sig ekki á grasinu eða mölinni. Alltaf er nú hægt að plata hann að standa alveg sjálfur og alltaf lengist sá tími. EN um leið og hann fattar að hann er í frjálsu falli (að hans mati, smá túlkun) þá sest hann niður. Hann segir mamma mjög skýrt og fallega. Svoldill mömmustrákur að mati mömmunnar þó pabbi segi það sama, þeas að hann sé pabbastrákur. Rosalega diplómatískt barn. Pabbi er ennþá dada. Svo bendir maður mjög mikið. Og reynt er að herma eftir dýrahljóðunum.
ASK fór í klippingu í gær og alltaf er sama sagan þegar hann er nýklipptur. Stóri strákurinn okkar verður óttarlegt smábarn. Fyndið hvað klipping gerir mikið fyrir andlitið.
Kristín Rósa er í heimsókn hjá okkur núna. Hún fór sjálf í flugvélina til okkar, ekkert smá stór stelpa. Í gær við kvöldmatinn þá sátum við öll við matarborðið og ASK gerði ekkert annað en að horfa eða stara á Kristínu Rósu. Honum finnst hún vera mjög spennandi. Fyndið að sjá hann setja mat í muninn án þess að líta af Kristínu.
Jæja þá er grill í kvöld hjá Sigrúnu, Snævari og Sólveigu Birtu. En þau eru að fara til Íslands á morgun. Reyni að setja inn myndir bráðum.
/Arna


7.6.07
Arna ritar frá Svíþjóð 10:31 f.h.
Ja hérna hér ég er svo aldeilis vita bit. Það er náttúrulega búið að vera brjálað að gera útaf kennslu. En svo höfum líka fengið skemmtilegar heimsóknir. Þannig að tími til að skrifa á bloggið hefur ekki verið fyrir hendi. En við vonum að þið fyrirgefið okkur.
Jæja heimsóknir: mamma o pabbi komu í maí og voru í nokkra daga. Þau komu hlaðin gjöfum og góðgæti frá Íslandi. Eitt af góðgætunum var rosagott hreindýr, afar vel skotið. Þar sem veðrið var mjög gott fórum við með þau í bíltúr til Hammarby þar sem að Linné átti heima og svo enduðum við með því að fara till Fjällnora, aðeins til að bleyta tærnar.
Síðan fengum við Þóru , Hákon og Vigdísi Tinnu í heimsókn að kvöldi dagsins sem mamma o pabbi fóru til Íslands. Þau voru búin að vera í mjög svo skemmtilegri heimsókn til Uppsala.
Nýlegasta heimsóknin var systir Karvels, Rannsý. Hún kom einning með helling af gjöfum og lambalæri. Okkur tókst að draga hana með okkur til Stokkhólms. Hún var líka rosaheppin með veður þann daginn. Aðeins var skroppið í búðir á Drottiningargötunni. En svo fengum við þessa góðu hugmynd að skreppa í einn garð. En þegar við komum þangað þá sáum við að hálfur íbúafjöldi Stokkhólms hafði fengið sömu hugmynd. Það var nefnilega veitingastaðakynning i garðinum. En okkur tókst að finna grænan blett og setjast niður. Þar tók Haukur framförum og stóð sjálfur (þeas án stuðnings) í nokkrar sekúndur í staðinn fyrir sekúndubrot eins og áður.
Þetta var rosastemmning í garðinum og keyptum við blöðrur handa stráknum. Eða ég og ASK fórum að velja. Mamman var nú alveg til í að kaupa svona stóra helíum blöðru en litla hjartað var ekki alveg að fíla það. En leist miklu betur á litlar blöðrur á priki.
Núna rétt áðan var ég að senda inn spurninguna mína á prófinu þannig að núna er bara að leiðrétta svörin (þegar maður fær þau) og þá er kennslan búin.
ASK fílar nýja leikskólan sinn og er byrjaður að blanda aðeins með sænskum orðum.
Í gær kom Birgitta vinkona í heimsókn og hann notaði frekar sænsk orð til að tala við hana heldur en íslensk. Þannig að hann er farin að fatta smá mun á þessu.
HFK er á fullu að skríða úti en nú þar sem það er svo heitt þá er svoldið erfitt að skríða í stuttbuxum. En nei auðvitað fer maður ekki að labba. Heldur þá skríður maður á höndum og fótum (þeas ekki hnjánum) alveg eins og aparnir. Rosasætt.
Jæja þá man ég ekki meira. En vonandi verður maður aðeins betri að skrifa.
/Arna



Nýjar myndir 12 Mars 2007!!!


Gamlar fréttir






arna&karvel
Visitor Map