Karvel ritar frá Svíþjóð 11:47 e.h.
Vá það er langt síðan eitthvað var skrifað hér. Hérna koma því nokkrar línur. Hér hjá okkur alltaf mikið að gera. Síðan Haukur varð eins árs hefur hann tekið miklum framförum í að labba og leika sér. ASK talar og talar og talar og talar... hann er komin með munnræpu enda hefur hann mikið að segja, hann hefur ekki geta gert sig skiljanlegan í 2 ár. Hann er orðin svo stór alltaf að reyna losna við bleyjurnar og gengur bara vel. Það sem er kannski stærst að frétta er að við erum komin með leikskólapláss fyrir strákana. Leikskólinn heitir Polacksbacken Förskola. Þetta er sem sagt vísindaleikskóli (framleiðir framtíðar vísindamenn) og er markmið skólans að vekja áhuga barna á raunvísindum. ASK á örugglega eftir að sakna Míu og öllum hinum krökkunum hjá dagmömmunni. nóg í bili ég ætla fara sofa núna. Það er engin miskun í fyrramálið ,bíllinn fer í sprautun kl 7 og ASK fer til Míu og á meðan förum við Haukur að synda. bless í bili