Arna ritar frá Svíþjóð 10:33 e.h.
Við erum komin á sumartíma, þannig að við erum tveimur tímum á undan ykkur á Íslandi. Annars er allt gott að frétta. Helgin fór mest í það að gera alsherjar tiltekt. Haukur Freyr er farin að segja mamma en því miður er ekki hægt að panta það. Arnar Smári er algjör páfagaukur og hermir eftir nýjum og nýjum orðum. Rosasætt að heyra hann segja orðið dúlla. Haukur er farin að æfa sig að labba þegar við höldum í hann. Þannig að við þurfum að fara o kíkja á skó fyrir hann. Svo þægilegt að fara í skóbúð og láta mæla fótinn fyrir sig. Ótrúlegt hvað barnastærðir eru mismunandi í cm frá mismunandi framleiðendum. Svo fórum við til læknis með Hauk til að athuga hvort hann væri eitthvað ofurliðugur. En hann er svo fín að það hálfa væri nóg. Læknirinn bentir líka á þá staðreynd að þegar það er svona stutt á milli systkina þá fær það yngra ekki að vera eins mikið á gólfinu og æfa sig. Því að það er alltaf verið að passa það frá því eldra. Þegar eldri systkini eru að vera ofurgóð og faðma/kremja yngri systkini. En Haukur er byrjaður að borga fyrir sig. Því í dag var ég með strákana að leika inní í herberginu þeirra. Og viti menn, alveg óvart náttúrulega. Er Haukur með trékubb og sveiflar hendinni fram og aftur og svo sleppir hann kubbnum. Nema þessi kubbur fer í hausinn á ASK. Mamman bíður eftir viðbrögðum. ASK tekur um staðinn þar sem kubburinn lenti, horfir á mig og fer að gráta. Hann var meira sjokkeraður heldur en meiddur á þessu að það tók smá tíma að hugga hann. Vinnan gengur ágætlega þrátt fyrir að föstudagurinn endaði í því tilraunin tókst. En vonandi er þetta bara lélegt klippiensím en ekki eitthvað annað. Ætla að kíkja á glasið og athuga með dagsetninguna á því, á morgun.
23.3.07
Arna ritar frá Svíþjóð 9:13 f.h.
Afmælisbarn dagsins er: SAGA. Til hamingju með daginn. kveðja frá ASKTHAR HF.
20.3.07
Arna ritar frá Svíþjóð 10:40 f.h.
Merkilegt gerðist í morgun þegar öll fjölskyldan gerði sig tilbúna til að fara út í bíl. Að mati foreldrana þá var þetta í fyrsta skipti sem að þetta var svo greinilegt og flott. Þetta hafði gerst áður en ekki svona skírt og flott. Hvað er ég að tala um? Jújú það kemur að því. Þegar Karvel er að klæða ASK í skóna þá tekst HFK að næla sér í hinn skóinn sem lá við hliðina á honum. Þá gerist þessi merki atburður. 3 orða setning kom frá ASK. Hún hljóðaði svona. "Haukur taka skóinn." Okkur foreldrunum fannst þetta alveg rosalega flott. Það er nú greinilega fullt að gerast inní litla hausnum. Því þetta var alveg satt, Haukur var með skóinn. Fyndið hvað svona hlutir geta alveg "gert daginn". Veit ekki hvað maður segir í staðinn fyrir "made my day". kv Arna
15.3.07
Arna ritar frá Svíþjóð 9:45 f.h. Glænýjar og sjóðandi heitar fréttir. Í gærkvöldi fékk ég að vita að greinin mín var samþykkt. Þetta þýðir sem sagt að yfir 3 ára vinna sé á enda og núna verði þetta birt. Fyrir þá sem ekki þekkja þetta ferli þá getur það stundum tekið mjög langan tíma að birta greinar. En í þessu tilviki þá gekk þetta mjög hratt fyrir sig því ég sendi hana inn á mánudagskvöldi o við fengum jákvætt svar á miðvikudagseftirmiðdegi. Ekki slæmt. En núna get ég ekki hætt að brosa. Ekki slæmt að vera með 2 greinar birtar (seinni er alveg að fara að birtast), 2 börn og 2 ár eftir í náminu. Ekki má svo gleyma Karvel sem er náttúrulega alveg yndislegur. Jæja þá verð ég að reyna að einbeita mér að vinnunni. Brosandi Arna.
14.3.07
Arna ritar frá Svíþjóð 9:00 e.h.
Jæja þá er komið að frásögn skíðaferðarinnar. Í stuttu máli þá var hún ÆÐI. Ekkert meira né minna. Skálinn sem við leigðum var mjög fínn. Nýlega endurgerður og hentaði vel fyrir 4 smábarnafjölskyldur. Það mikilvægasta var uppvöskunarvélin og gufan. Gufan hentaði einkar vel fyrir þreytta vöðva. Við fengum mjög fínt veður. Ekki of kalt fyrir litlu krílin og sólin kíkti á okkur í nokkur skipti. Okkur tókst að fara alla daga á skíði. Við skiptumst á að fara á skíði o svo meira að segja fórum við Karvel saman á skíði. Þar sem ferðafélagar okkar voru svo góðir að líta eftir strákunum. Maður var nú ekki lengi að rifja þetta upp, þeas hvernig svigskíðin virka. Undirrituð var nefnilega svoldið skeptískt þar sem að það eru 3 ár síðan síðasta skíðaferð var farin. En óþarfi var að hafa þessar áhyggjur þar sem að þetta kom fljótt tilbaka. Meira að segja tókst mér að fara á after-ski með Sigrúnu o Emelíu. Aðalskemmtunin var að fara með ASK o HFK á skíði, þar sem ASK sýndi fram á þvílíka hæfileika. Við byrjuðum á því að fara með hann á rullband eða færiband í mjög stuttri brekku, ef brekku er hægt að kalla það. Það fannst honum mjög gaman. Þetta var á miðvikudaginn. Svo leigðum við aftur skíði fyrir hann og fórum á laugardeginum í STÓLALYFTUNA. Þar bjóst maður nú alveg við því að hann yrði hræddur eða eitthvað. En nei þá sagði hann bara: vá. HFK var svo afslappaður í bakpoka hjá pabba sínum að hann sofnaði á leiðinni upp. Á toppnum tók ég ASK milli fótanna og hélt á honum ofan á stöfunum. Mæli nú ekki með þessari aðferð því hún reynir mikið á bakið. Þannig að eftir smá pínu þá prufuðum við beltið sem við keyptum. OG barnið bara renndi sér á skíðunum alveg eins og hann hefði ekki gert neitt annað. Ef þið hafið ekki tekið eftir því þá erum við alveg að springa úr stolti. Þetta fannst honum rosagaman. Þegar við vorum komin alla leið niður fórum við í nokkrar ferðir í barnabrekkuna. Þetta var svo endurtekið á sunndeginum við mikla gleði. Þá kíktum við í Tröllaskóginn við mikla kátínu hjá ASK. Allt var mjög áhugavert o skemmtilegt. HFK var á fullu að skríða í skálanum og það skemmtilega við þessa ferð var að þeir byrjuðu að "leika" saman. Til dæmis þá skreið ASK í áttina til HFK og lék ljón með hljóðum o öllu. HFK fannst þetta alveg rosafyndið o hló og hló. Þá hló ASK og svo HFK. Þið fattið þetta. Það var svo gaman að sjá alla litlu krakkan leika saman. Anna Eir er svaka dugleg að labba. Eiríkur o ASK voru mjög duglegir að leika sér saman og prakkarast. Sólveig Birta gerði ekkert annað en að vera yndisleg. En greyið Sigrún o Snævar skiptust á því að vera veik. En náðu samt að fara smá á skíði. Restin var oftast hress o skíðaði mikið eða brettaðist. Bílferðirnar tókst vel þrátt fyrir að ASK ældi 2svar á leiðinni til Uppsala. Guði sé lof fyrir leikskólalögin. Vona að þetta sé nóg. Bæjó. Arna Við erum svo ánægð með þessa ferð. Að það hálfa væri nóg.