<


Linkarnir okkar
Dagbækur

Arnar Smári

Auður, Emelía og Anna Eir

Eiríkur Freyr

Hrönn og Georg

Sólveig Birta

Þóra, Hákon og Vigdís Tinna

Birgitta Rún NÝTT

Margrét Vilborg

Edda, Gummi, Ýr og Elísabet

Kristín Rósa



Aðrar síður

BMC
Heimasíða labbsins

Uppsala
Uppsala Universitet


Skype






Teljari:
Site Meter
baby
babies20.2.07
Karvel ritar frá Svíþjóð 2:23 e.h.
Halló allir.
Hérna eru nokkrar nýjar myndir teknar í Janúar og Febrúar á þessu ári


19.2.07
Arna ritar frá Svíþjóð 8:57 f.h.
Afmælisveislan var mjög skemmtileg. Helling af krökkum hlaupandi útum allt. Arnar Smári var svo skemmtilegur að hann afgreiddi sig sjálfur með pakkana. Hann sótti bara pakka sem við höfðum sett á hvíta skenkinn og opnaði. Það er svo fyndið hvernig hann opnar pakka. Hann rífur pappírinn í frumeindir. Vandar sig mjög mikið og rífur o rífur. Hann fékk rosaskemmtilegar gjafir, eins og risatraktor, púsl, helling af bílum, föt, hlý föt fyrir skíðaferð, bækur, leir, borð með Bílarlímmiðum, bílastæðahús og vagn fyrir sparkbílinn. Og örugglega eitthvað meira því að ég hafði nú ekki alveg yfirsýn þegar ungi drengurinn afgreiddi sjálfan sig.
Hann hafði svo mikinn áhuga á pökkunum að það var ekki hægt að láta hann borða mikið. Svo þegar flestir gestirnir voru farnir var haldin fundur um skíðaferðina með Stokkhólmsliðinu.
Það nýjasta sem ASK segir núna er: blaðra búmm. Því að það sprungu nokkrar blöðrur í veislunni o eftir hana.
En við foreldrarnir eru mjög ánægð með afmælisveisluna og þökkum kærlega fyrir strákinn okkar.
Svo verð ég nú að segja frá því að um kvöldið fengum við Karvel að skreppa í bíó. Saga systir var svo góð að passa fyrir okkur. Hún er svo góð við okkur.

Ekki má nú gleyma að segja frá því að Hjalti Már frændi o Anna Ýr eignuðust gullfallega stelpu 16. febrúar. Við bíðum spennt eftir að sjá hana "live".

Jæja þá er komið að því að vinna. Þangað til næst.


16.2.07
Arna ritar frá Svíþjóð 10:47 f.h.
Hann á afmæli í dag. Arnar Smári er 2 ára í dag. Eiginlega nákvæmlega núna, þegar ég pikka þetta inn, fæddist hann fyrir 2 árum. Vá hvað tíminn er fljótur að líða.
Dagmömmurnar eru í dag í leikskólasalnum og í tilefni dagsins fá krakkarnir ís. Veit nú ekki alveg hvernig hann á eftir að fíla það því hann borðar ekki ís.
Það fyndna er að ASK segir ekki mörg sænsk orð en er greinilega farin að kenna hinum krökkunum íslensku. Um daginn þegar Karvel sótti Arnar Smára, hljóp Hugo til Karvels og sagði strætó. Auk þess að spyrja hvernig önnur orð væru á íslensku.
Á morgun klukkan 11 verður svo afmælisveislan. Jæja klára að vinna svo maður geti farið heim o knúsað afmælisbarnið.
Vonandi koma myndir bráðum.

kv rosastolt mamma.


11.2.07
Arna ritar frá Svíþjóð 8:14 e.h.
Á morgun er spennandi dagur. Haukur verður 10 mánaða o við förum í 10 mánaða skoðun. Gæti nú ekki verið nákvæmara. Veit nú ekki alveg hvað hún á eftir að segja þegar hún fréttir að Haukur sýnir engan áhuga á því að skríða.
Annars er það að frétta að í dag fjárfestum við í 2 snjóþotum og keyrðu til Fjällnora til að prufukeyra þær. Haukur fékk eina þar sem stutt er við bakið á honum o band til að passa að hann detti ekki úr henni. Arnar Smári fékk þessa venjulegu stóru snjóþotu. Þeir voru alveg að fíla þetta í botn. Eftir smá göngu fórum við inn á kaffihúsið o fengum okkur kakó. Amm namm. Á leiðinni tilbaka í bílinn var ASK eitthvað eirðarlaus og komast að því ef hann hallaði sér á hliðina þá komst hann úr snjóþotunni. Þetta varð hið mesta sport foreldrunum til mikillar ánægju. Svo sofnuðu prinsarnir í bílnum á leiðinni heim. Þrátt fyrir að ég skapp inní búðina. Ekki heldur vöknuðu þeir við að vera bornir inn. Þegar við komum heim voru Sigrún, Snævar o Sólveig Birta í garðinum o biðu spennt eftir pönnukökum. Þegar klukkan var að verða hálf 6 var ASK tekinn fram svo hann mundi nú sofna á eðlilegum tíma um kvöldið. Greyið litila var svo þreytt eftir ævintýri dagsins þannig að hann sat hjá mér og vildi ekki hreyfa sig eða vakna.
En þegar að Sigrún, Snævar o Sólveig Birta voru á heimleið byrjaði að lifna yfir honum.
Enda verður maður mjög þreyttur á því að vera dreginn í snjóþotu.

Þangað til næst.


7.2.07
Arna ritar frá Svíþjóð 12:42 e.h.
Þá er maður kominn aftur í vinnuna. Oh my god hvað allt er búið að vera skrítið síðustu daga. Ég fárveik og strákarnir með kvef. Sem betur fer er Karvel búinn að sleppa við alla kveisu. Ég er semsagt á þriðja fúkkalyfskúrnum á jafnmörgum mánuðum. Ekki gaman. EN vonandi er þetta búið núna og ekkert nema gleði o gaman taki við.
ASK er búinn að vera á versta 2ára "mótmælaskeiði". Hann vill ekki borða neitt. Bara djús o kökur. (Við foreldrarnir viljum þakka kærlega þeim sem hjálpuðu við þetta ástand. Þið vitið hver þið eruð.) Svo stundum situr hann alveg rólegur og allt í fína. En svo allt í einu verður hann rosapirraður. Þá stundum fá leikföngin sem eru næst honum fína flugferð. En stundum hefur þessi flugferð endað mjög nálægt hausnum á HFK (einu sinni fór dótið í hausinn). Þannig að litli bróðir er orðinn svoldið kvekktur nálægt ASK. Því að þegar hann er nálægt HFK td að faðma hann. Þá byrjar HFK með svona smá væl bara svona til að láta okkur foreldrana að ASK sé kominn vel nálægt honum.
Núna erum við byrjuð að senda ASK inní herbergi þegar hann er óþekkur o hann fær ekki að koma út fyrr en hann er tilbúinn að biðjast afsökunar. Þetta svínvirkaði í fyrstu skiptin. Núna veit hann alveg hvað er að gerast og biðst bara strax afsökunar. Þannig að þá er hann ekki sendur inní herbergi. Þau eru fljót að læra. :-)
Í morgun var skítkalt -17 stig. Þannig að ASK var klæddur í ullarnærföt og ullarundirföt og svo venjuleg föt yfir allt. Svo í skíðagallann og allt. Svo þegar strákarnir eru að fara út til Míu, hringir hún og segir að það sé svo kalt að þau fari ekki í skóginn um morguninn. Þannig að hann eigi bara að koma beint til hennar. Svo við vitum ekki hvort fínu vetrar fötin virki. En það kemur örugglega annar dagur til þess.
Kk Arna hin hóstandi.



Nýjar myndir 12 Mars 2007!!!


Gamlar fréttir






arna&karvel
Visitor Map