Arna ritar frá Svíþjóð 11:09 f.h.
Jæja þá er ég byrjuð aftur í vinnunni. ÉG sem ætlaði að byrja rólega. Þeas vinna í nokkra tíma og vinna mig upp. En nei það tekst nú ekki. En þetta kannski lagast í næstu viku því að við erum að reyna að senda grein frá okkur. Þið vitið þetta efni sem ég var að vinna að þegar ég var ólétt af ASK. JAmm við erum búin að vera 3 ár að setja þetta saman og fá birt í tímariti. Ekki er það nú auðvelt. En en... vonandi tekst þetta núna. ASK verður svaka æstur þegar ég kem heim úr vinnunni. Hann er greinilega ekki alveg búin að átta sig á þessari breytingu. HFK er alltaf eins glaður og hann er. Hann getur fengið þessi rosafyndnu hlátursköst þegar hann situr á gólfinu og fylgist með bróður sínum. Það er nú alveg greinilegt hver er fyndinn samkvæmt HFK og það eru ekki foreldrarnir. Svo er rosasætt þegar við erum að æfa HFK á maganum. Þá kemur ASK á fleygiferð og legst við hliðina á honum (stundum er hraðinn svo mikill að hann endar ofan á HFK). Svo sýnir hann HFK hvernig maður á að skríða. Ekki slæmt að hafa svona einkaþjálfara í "skríði". Veðurfréttir fyrir þá sem hafa áhuga á því. Um helgina snjóaði þessi ósköp og hann er ekki farinn. Enda er svoldið mikið frost. Á kvöldin fer það niður í -15 gráður. Loksins kom veturinn.
kær kveðja
2.1.07
Arna ritar frá Svíþjóð 1:30 e.h.
Hæ hæ gleðlilegt nýtt ár. Þökkum fyrir allt það skemmtilega á liðnum árum. Núna erum við á Íslandi og gsminn okkar er: 662-5223. Kveðja Arna o co