Arna ritar frá Svíþjóð 10:29 e.h.
HFK er nákvæmlega 5 mánaða í dag. Helstu framfarir eru að hann kann núna að velta sér og viti menn hann kann líka að sitja alveg sjálfur. Pabbinn setti hann á gólfið og þar sat hann alveg einn, svoldið boginn en hvað með það. Síðan í tilefni af ammælinu var fyrsti maturinn prufaður í dag. Gular baunir o kartöflustappa var á matseðlinum. Honum fannst þetta nú svoldið skrítið en smattaði aðeins á þessu. Held nú samt að eitthvað hafi farið niður í maga þó að mikið væri kringum munninn. Síðan í ég veit ekki hversu langann tíma fór undirrituð í líkamsræktarstöðina. OG fyrir þá sem lesa þá var þetta algjört afrek. Ekki vegna áhugaleysis heldur vegna þess að hún á 2 ltila engla sem þarf að sinna og taka sinn tíma. Endilega tjáið ykkur. Sjáumst seinna.
3.9.06
Arna ritar frá Svíþjóð 8:33 e.h.
Loksins tókst að setja þetta á netið. Alveg glænýtt myndband með Hauki. Klikkið hér.
Arna ritar frá Svíþjóð 2:00 e.h.
Jæja þá er aftur kominn sunnudagur. Vikurnar rúlla áfram hjá okkur. Haukur Freyr dafnar o er alveg eins glaður o stóri bróðir. ASK getur næstum því sagt Haukur, það hljómar alveg eins o: gauku. ASK finnst rosagaman hjá dagmömmunni. Leikur sér á fullu o skemmtir sér vel með krökkunum. Þau eldri eru svaka dúllur o faðma hann bless þegar ég kem o sæki hann. Á fimmtudaginn var hann á rugguhestinum og þegar ég er að nálgast tek ég eftir því að hann bendir í áttina að mér. Svo þegar ég tek beygjuna inn í garðinn þá hleypur hann á móti mér. Ég fékk svo að vita frá Miu að hann hefði sagt: mamma og farið af rugguhestinum en þegar hún kíkti þá sá hún mig ekki. Þannig að hún vissi nú ekki alveg hvað væri í gangi. En minn sá mömmu sína o varð þetta glaður. Svo þegar hann var búinn að segja hæ. Þá hljóp hann aftur að rugguhestinum. Mömmuhjartanu fannst þetta mjög skemmtilegt því að hann hefur varla sagt hæ þegar ég kem o helst ekki viljað fara með. En besta trikkið til að láta hann hætta kvarta í vagninum er að segja uss o benda á burðarrúmmið og segja að Haukur er sofandi. Þá setur hann puttann fyrir muninn o segir Fffffffff. Svoldið erfitt að lýsa þessu í orðum en það verður bara að nægja. En síðan á föstudag hefur ASK verið með hita. Hann fékk nefnilega 18 mán sprautu fyrir viku. Sem er akkúrat biðtíminn þegar hitinn kemur. Í nótt átti hann svoldið bágt og var með næstum því 40 stiga hita þannig að hann fékk að vera í mömmu o pabba rúmmi. Í dag lítur þetta nú að vera að batan en það hélt ég líka í gær þannig að maður veit aldrei. Vegna hitans misstum við af rosafínu kaffiboði hjá Önnu Eir, Emelíu o Auði í tilefni af ættleiðingunni. Við erum alveg rosa leið yfir að hafa misst af því. Annars líður okkur mjög vel í nýju íbúðinni. Svo kannski koma bráðum nýjar myndir, hver veit. Þangað til næst.