Arna ritar frá Svíþjóð 9:21 e.h.
Jæja loksins skrifa ég á heimasíðuna. Eins og greint hefur verið frá þá gekk fæðing mjög vel og mér líður vel (svona eiga fæðingar að vera, ekkert mál fyrir Jón Pál). Arnar Smári er rosa stoltur af litla bróðir og passar vel uppá hann. Haukur Freyr er mjög líkur bróðir sínum, bæði í útliti og skapi. Hann sefur vel og drekkur vel. Arnari Smára finnst rosagaman að leika sér í garðinum að elta bolta og þann skemmtilega leik að fara inn og út, fara inn o út. Tröppurnar er svoldið spennandi. Auk þess er hann algjör prakkari og klifrar uppá kollinn sinn og stendur á honum og sleppir takinu á kollinum OG veifar til okkar. Svo er skilningurinn farinn alveg á fullt. Manni finnst nú hann ekki mikið skilja hvað við erum að segja en svo tekur maður eftir því að hann veit ALVEG hvað við erum að segja við hann. Í dag fórum við að skoða íbúðina okkar sem við keyptum á Klockargatan. Karvel mældi út nokkur herbergi og svo skrapp ég inn til að taka myndir. Rosagaman að sjá hvernig litirnir komu út. Ég er nefnilega búin að vera svoldið efins um útkomuna. Svoldið erfitt að dæma útkomuna á vegg útifrá litarræmu á pappír. En eftir að hafa séð þetta í dag er ég rosaánægð með útkomuna. Svo er nú líka gott að hafa svona góðan arkitekt fyrir pabba sem hjálpar manni. Til að sjá myndir klikkið hér.
kveðja Arna
22.4.06
Karvel ritar frá Svíþjóð 5:13 e.h.
Hæ hæ allir þetta er Arnar Smári. Það er rosalega gaman að vera stóri bróðir. Ég er ekki frá því að mamma og pabbi séu svolítið stolt af Hauk. Ég skil þau vel hann er rosa flottur. Áður en Haukur fæddist fóru mamma og pabbi í Babyland og keyptu fullt af smábarnadóti fyrir Hauk og í leiðinni keyptu þau kopp handa mér. Mér hefur nú ekki fundist gaman að nota hann hingað til, svoldið gaman að standa í honum og nota hann sem hatt. Pabbi er alltaf að láta mig sitja á honum. Ég geri það nú fyrir hann. Síðan í gær sat ég og var rosa mikið mál að kúka en ég vildi ekki kúka í koppinn því hann er svo flottur. Þannig að ég stóð bara upp og kúkaði á baðherbergisgólfið eftir það settist ég aftur á koppinn. Pabbi var nú ekki mjög ánægður en sagði að þetta kemur allt saman með tímanum. Svo í gær fór mamma á pósthúsið því Haukur Freyr var að fá fyrsta pakkan sinn. Enn póstkallinn vildi ekki að mamma fengi pakkann og heimtaði að Haukur kæmi sjálfur og sótti pakkann því hann átti að skrifa undir. Þvílíkt vitlaus póstkall Haukur er bara 9 daga gamall og kann ekki að skrifa. Mamma talaði við kallinn og útskýrði fyrir honum hvernig var og hann baðst afsökunar og lét mömmu hafa pakkan. Í pakkanum voru rosa fín föt frá afa Rúnari og ömmu Helgu. Takk kærlega fyrir þau.
bless bless í bili ARNAR SMÁRI
19.4.06
Karvel ritar frá Svíþjóð 6:30 e.h.
Hæ hó allir Núna er Haukur Freyr orðin viku gamall og er alveg að ná fæðingarviktinni sinni. Hann er rosaduglegur að drekka og verður ekki lengi að bæta á sig kílóum. Hérna eru komna nýjar myndir. Klikka hér.
15.4.06
Karvel ritar frá Svíþjóð 11:00 e.h.
Hæ allir og gleðilega páska!
Við erum búin að hafa það gott og öllum líður vel. ASK er búinn að vera með smá magaflensu þannig að við foreldrarnir erum búin að finna fyrir því hvað það er að vera með 2 smábörn. Öllum líður vel núna og Haukur dafnar vel. Við fáum að sofa seinna. Ég ætla að hafa þetta stutt núna enda nóg að gera. Hérna eru nokkrar nýjar myndir af fjölskyldumeðlimum Fleiri myndir koma fljótlega.
13.4.06
Karvel ritar frá Svíþjóð 10:14 e.h.
Hæ allir! Takk fyrir allar þær hamingjuóskir sem við höfum fengið. Hauki líður vel og Arnar er búin að komast að því að þetta er engin venjuleg dúkka. Hann er rosagóður við litla bróðir og hann gefur honum koss og faðmlag reglulega. Ég er að taka fleiri myndir og koma þær innan skamms. Fylgist vel með síðunni.
Kveðja Karvel, Arna Arnar Smári og Haukur Freyr.
12.4.06
Karvel ritar frá Svíþjóð 9:54 e.h.
Hæ allir Svona gerðist þetta. Arna sofnaði um 11:00 í gærkvöldi. Ég vill ekki meina að ég fann það á mér að ég þurfti að taka til en ég vissi að ég hafði ekki tíma í það næsta morgun. Ég var til 01:45 í húsverkum. Klukkan 04:00 vakti Arna mig "Karvel vatnið er farið" ég svaraði "ertu ekki að djóka" og hugsaði einmitt nóttin þegar ég fór seint að sofa. Þetta fór hægt af stað og allt var í rólegheitunum. Arna var ekki með svo mikla verki og í raun hafði ekki mikið vatn lekið. Arna sat inn í stofu og leysti krossgátu og ég fór að spila Poker á netinu og vann 1600 Dollara. Um Kl 06:00 voru verkirnir ekki svo slæmir en Arna vissi meira af þeim en kvartaði lítið. Við ákvöðum að ræsa Sögu svo að hún væri nú á staðnum þannig að við gætum farið af stað hvenær sem er. Eftir það fór að draga til tíðinda verkirnir urðu sterkari en samt ekki alvarlegt við vissum þó að við myndum eignast barn þennan dag. KL 06:20 Saga hringir og segir okkur frá því að leigbílstjórinn er villtur. Ég redda því og Saga er komin til okkar 06:30 Þá segir Arna "Karvel ég vill að við förum upp á fæðingadeild NÚNA" KL 06:40 erum við komin inn á skoðunarherbergið. Þá er ég ekki að fatta hversu mikla verki Arna er með. Hjúkrunarkonan horfir á hana og segir "Heyrðu elskan eigum við ekki að fara með beint inn á fæðingarherbergi" Við gerum það. Ég er ekki að fatta neitt sem er að gerast. Arna fær hláturgas og það hjálpar lítið komumst þá að því að slangan með gasinu er ekki tengd. Þá segir ljósmóðurin "Arna ég sé hausinn geturu kreyst einu sinni enn þá er barnið komið út" "HA" sagði ég. Arna kreysti einu sinni enn og út kom kl 06:55 Haukur Freyr Karvelsson. 4120 gr og 54 cm. kl 07:03 klippti ég á naflastrenginn og ljósmóðirin og hjúkkan þökkuðu fyrir sig þeirra vakt var búin. Þær þökkuðu sérstaklega fyrir það hvað þetta gekk hratt það væri alltaf gaman að fá að taka á móti barni svona rétt fyrir vaktalok. Eftir það fengum við að vera í friði og Haukur fékk að drekka og var hann mjög duglegur. Tíminn leið og um 13:30 kom barnalæknirinn og skoðaði Hauk hann fékk 9 10 10 í einkunn. Það eina sem hún fann, Var að hann var of þungur miðað við meðgöngualdur (37vikur+6dagar) þá fræddum við hana um Íslensk börn og hún tók okkur trúanleg. kl 14:15 vorum við komin heim til Arnars Smára og Sögu....
Karvel ritar frá Svíþjóð 5:48 e.h.
Halló allir Takk fyrir allar þær kveðjur sem komnar eru. ÞETTA GEKK HRATT FYRIR SIG. 25 mín. eftir að við lögðum afstað að heiman fæddist Haukur Freyr Karvelsson 4120 gr og 54 cm Við erum komin heim og í kvöld kemur nánari útskýring á öllu saman Það eru komnar myndir klikka hér
11.4.06
Karvel ritar frá Svíþjóð 9:03 e.h.
Jæja þetta verður allvega lengri meðganga núna heldur en þegar Arna gekk með ASK. Því kl 20:30 átti vatnið að fara. Eitthvað verðum við að bíða................. Það er nú eitthvað smá farið að draga til tíðinda en ekkert sem segir að þetta geti gerst núna. Ég var líka að komast að því á þessari meðgöngu fór Arna ekkert að gráta undan mér (hormónagrát) Hún fór nefnilega að gráta þegar hún gekk með ASK vegna þess að ég setti á vitlausa útvarpsstöð í einum bíltúrnum. Ég var víst eitthvað lengi að skipta um stöð og allir vita nú hvað það tekur langan tíma að skipta um útvarpsstöð. Ég er búin að vera alveg eins engill við hana núna og er orðin rosafljótur að skipta um stöð. Ekki gleyma að kvitta fyrir komu ykkar á síðuna.....
10.4.06
Karvel ritar frá Svíþjóð 1:37 e.h.
Halló allir!! Núna fer að styttast í fæðinguna, ef að þessi meðganga verður jafnlöng og sú með ASK þá fer þetta á stað á morgun........... Arna er allvega tilbúin....... Ég og ASK rosa erum spenntir og hlökkum til að fá nýjan leikfélaga. Í gær fórum við fjölskyldan í göngutúr og ASK labbaði alveg sjálfur allan tímann. Auðvitað tókst honum að detta í eina pollinn á leiðinni (líklega viljandi) síðan fórum við á leikvöllinn og mokuðum sandi og kattaskít eftir það fór hann inn og í bað. Arna er heima núna með okkur og finnst ASK það hið besta mál því að þá er hægt að kvarta í mömmu strax. Það eru komnar nýjar myndir, linkurinn er hérna hægra megin á síðunni. Fyrir neðan tengilinn Gamlar fréttir einnighægra megin á síðunni eiga að birtast nokkrar hreyfimyndir.Ef þú sérð engar myndir þarftu að ná í FLASH PLAYER 8 þú getur náð í hann hér... Endilega klikkið líka í tengilinn Tjáðu þig hérna fyrir neðan og kvittið fyrir komu ykkar. Við höfum rosa gaman af því að sjá hverjir koma inn á síðuna okkar.