Karvel ritar frá Svíþjóð 9:31 f.h. ATHUGIÐ ATHUGIÐ! Vildi bara láta vita að netfangið mitt hjá COMHEM er ekki lengur virkt ef þið viljið senda mér (Karvel) tölvupóst þá getið þið sent póst á bioar@hotmail.com Einnig vegna tæknlegra örðuleika varð ég að skipta um símanúmer hjá SKYPE það er núna askthar Endilega breyta því hjá ykkur sem fyrst.
21.2.06
Karvel ritar frá Svíþjóð 12:09 f.h. GRÓF LÍKAMSÁRÁS FRAMIN FYRIR UTAN GLUGGAN HJÁ OKKUR!!!!! Á sunnudagin síðasta fórum við fjölskyldan í labbitúr með ASK í nýju snjóþotunni hans. Eftir labbið fór Arna og ASK inn og ég var fyrir utan og bjó til snjókall handa þeim. Þau sátu inni og horfðu á mig byggja 2 metra snjókall. Að því loknu fórum við inn og horðum við á OS. Þegar ég leit út seinna um kvöldið var búið að lemja snjókallinn okkar í klessu og hausinn hendurnar voru rifnar af.(og búið að borða gulrótina(nefið)) Þvílík ósvífni! Lögreglan er ráðþrota en tókst samt að safna einhverjum sönnunargögnum. Það má segja að þetta hafi verið ísköld líkamsárás. Annnars er allt gott að frétta afmælið var haldið um helgina og tókst það vel. Og svo stóru fréttirnar. Ég var að vaska upp og ASK var að leika sér hjá mér. Skyndilega var allt hljótt, ég leit við og viti menn ASK komst inn í búrskápinn og náði í suðusúkkulaði. Sat hann þar á gólfinu með súkklaði ÚTUM ALLLLT og þvílíkt glott, þetta var sko gott. Núna fer að styttast í þetta hann tekur allt fleiri skref á hverjum það styttist óðum í það að hann fari að labba alveg. kveðja frá Karvel Örnu og Arnari Smára
16.2.06
Arna ritar frá Svíþjóð 11:53 f.h.
Hann á afmæli í dag. Hann á afmæli í dag. Hann á afmæli hann Arnar Smári. Hann er 1 árs í dag. Hann er 1 árs í dag. Hann er 1 árs hann Arnar Smári. Hann á ammæli í daaaaaag. Jæja þá er fyrsti afmælisdagurinn runninn upp. Endilega skrifið í gestabókina: Tjáðu þig. Kveðja stoltir foreldrar
15.2.06
Arna ritar frá Svíþjóð 12:06 e.h.
Það styttist í afmælið núna. Nákvæmlega klukkan 20:30 í kvöld fór vatnið fyrir "nákvæmlega" einu ári. Síðan 14 tímum seinna klukkan 10:34 fæddist yndislegi strákurinn okkar. Ég er búin að panta í tilefni 14 tíma nudd hjá Karvel. Sem byrjar kl 20:30 og endar 10:34 næsta dag. Hann er nú eitthvað ekki alveg að gefa sig í því. En mér finnst þetta vel sloppið fyrir hann. ;-) Ég er nú líka búin að segja hann fái 5 mín pásu á klukkutímanum eins og vinnulöggjöfin segir til um. Ekkert smá skrítið að eitt ár sé liðið. En ég er búin að athuga dagatalið og þetta er víst rétt. Helstu fréttir af ASK er að í fyrradag (13/02) tók hann alveg sjálfur 3 skref, nokkrum sinnum. Þannig að þetta er allt að koma hjá honum. Svo kann hann að kinka kollinum til hliðar (já, já, já) og upp og niður (nei nei). Mjög fyndið að sjá hann gera eitthvað sem hann má ekki og við segjum nei og hristum hausinn og hann hermir eftir og hristir hausinn og heldur svo áfram að gera það sem HANN vill.
kv Arna
9.2.06
Karvel ritar frá Svíþjóð 11:57 e.h.
Jæja það var lengi síðan ég skrifaði eitthvað hér! Ég er búin að vera heima í 4 mánuð með ASK og við skemmtum okkur alveg konunglega. Við æfum okkur að labba á hverjum degi og er orðnir nokkuð færir, en hann er ekki alveg tilbúin að sleppa pabba sínum ennþá. Á fimmtudögum förum við á svokallaðan opin leikskóla þar sem foreldranir eru með allan tíman að leika og syngja. ASK gerir ekkert annað en að daðra við hinar mömmurnar pabba sínum til mikillar ánægju. Hann er í eldri kantinum og förum við í næstu viku með krökkum sem eru á bilinu 1-2 ára. Þá er nú hætt við því að hann geti nú fengið smá sjokk því það verður ekki eins auðvelt að stela leikföngunum af þeim sem eru 2 ára eins og af þem sem eru 6-10 mánaða. ASK byrjar sína daga snemma með því að vakna um 6 leytið. Þá fær hann að skríða uppí og sefur hann þá til ca 8 þá fær hann nú alveg nóg af þessari leti í foreldrunum og byrjar með að vekja mömmu sína með því að toga í hárið á henni. Þegar hún er vöknuð snýr hann sér að mér og gerir sama við mig. Ég hélt að ég gæti séð við honum með því að klippa mig stutt en hann var ekki lengi að finna nýja aðferð best aðferðin er að klípa og toga í nefið á mér sem verður sko til þess að ég er fljótur að vakna. Við erum duglegir að fara út að labba og hlakkar okkur til að eignast snjóþotu svo að við getum farið út og leikið okkur í snjónum sem er alltaf að koma og fara. Íbúðin er nánast komin í stand og erum við tilbúin að taka við gestum aftur. Fyrstu gestirnir eru mamma og pabbi( Sigga og Steini) þau koma 1-5 mars. Þá stefnir ASK á það að vera búin að læra að labba. í næstu viku verður hann 1.árs og verður haldið upp á afmælið 18 febrúar. Ólettan sem er í gangi núna hefur gengið ótrúlega hratt(Arna kannski ekki sammála) þar sem við höfum nú haft nóg að gera með ASK og aðra hluti eins og íbúðarkaup og flutninga. Annars er ekki mikið á dagskrá annað en að skemmta okkur og sjá til þess að öllum líði vel. Læt þetta duga í bili þangað til næst bless bless
Arna ritar frá Svíþjóð 11:35 f.h.
Þá erum við flutt á Väktargatan 72c. Við fengum alveg frábæra hjálp. Það tók bara 2 tíma að flytja. Þá voru allir kassar og húsgögn komin á V-gatan og pizzurnar komnar. Í heildina þá vorum við 12 fullorðnir og 2 litlir gríslingar. En þar sem ég og Emelía erum báðar með stóra kúlur. Þá var Emelía sett í það að passa Eirík og ég þurfti nú ekki að lyfta kassa. Bara stóð þarna og skipulagði auk þess að sjá um að panta pizzur. Núna erum við á fullu að koma okkur fyrir á V-gatan. Það er nú ekki mikið eftir auk þess að við tökum ekki uppúr öllum kössunum. Í gærkvöldi reyndum við að hengja upp myndir með einhverjum ógurlegum krókum og veiðigirni. Það stóð nú á pakkanum að girnið væir EXTRA STRONG en það hélt nú ekki uppi gamla Íslandskortinu. Þannig að ný tilraun verður gerð í kvöld með ennþá sterkari girni. Arnari Smára líst bara vel á nýju íbúðina. Hann er nú að fá leið á því að opna skápana sem eru í hans hæð. Því að pabbi hans er búinn að setja barnalæsingar á alla skápana. En hann testar það nú reglulega hvort læsingarna séu ennþá til staðar. Arnar Smári er þvílíkt kraftatröll. Við vorum búin að setja utanáliggjandi læsingu á skúffuna fyrir neðan ofninn. Viti menn tekur hann ekki festinguna af í einu handtaki. Þurfti ekki einu sinni að rembast við það, bara flaug af. Svo finnst honum svaka gaman að standa alveg sjálfur í nokkra sek auk þess sem hann er byrjaður að taka eitt til tvö skef sjálfur áður en hann lætur sig falla á hnéin. En finnst samt betra að taka skref þegar hann getur haldið í eitthvað. Smá tilkynning: Það er búið að tengja heimasímann okkar og nettengingin er líka í lagi.
Þangað til næst
1.2.06
Arna ritar frá Svíþjóð 10:39 f.h.
Svo má nú ekki gleyma nýjungunum á heimasíðunni okkar. Hér fyrir ofan má sjá niðurtalningu á afmælinu hans ASK og svo komudag bumbubúa 2. Til hægri undir "Gamlar fréttir" er hægt að sjá myndaglugga sem breytir um mynd eftir nokkrar sek. Auk þess tókst mér að setja nokkar myndir á myndasíðuna. Einnig er linkur á þær í færslu sem var gerð 28. janúar. kv Arna
Arna ritar frá Svíþjóð 10:23 f.h.
Það styttist óðum í flutningana. Í dag fáum við lyklana að Väktargatan. En samtímis þá missum við nettenginguna á Apelgatan. Við sögðum upp comhem tengingunni okkar því að við verðum tengd stúdentanetinu á Väktargatan. Svo þegar við komumst loksins í okkar íbúð þá verðum við með einhverja tengingu sem húsfélagið stendur fyrir. Þannig að núna eru Karvel og ASK heima í netlausri íbúð sem kassa útum allt. Í gærkvöldi tókst okkur ekkert að pakka þannig að við þurfum að taka á okkar stóra í kvöld. Ég verð nú bara að segja frá því hvernig sonurinn var svæfður í gærkvöldi. Jæja faðir barnsins tók upp á því að nota svokallaða 5 mín aðferð. Þannig að Karvel fór inn með hann að sofa. Lagði hann í rúmið og kyssti góða nótt og stuttu seinna fer útúr herberginu. Þá byrjar minn að gráta og gráta. Þetta fékk hann að gera í 5 mín þangað til pabbinn fór aftur inn. Þá var hann lagður aftur og róaður niður. Síðan var farið aftur út og sama sagan aftur. En þetta virkaði ekkert smá vel þar sem að hann sofnaði á ca 20 til 30 mín. OG rúsínan í pylsuendan (veit nú ekki alveg afhverju maður segir þetta) er að hann svaf ALLA nóttina án þess að vakna og vilja koma yfir í okkar rúm. Síðan vaknaði þessi engill (kl 8:30) og byrjaði að leika sér í spiladósinni og dunda sér aðeins. Svo eftir smá tíma fannst honum nú nóg komið og beið bara eftir því að vera tekinn upp úr rúminu með þetta svaka bros. Þannig að þetta kannski virkar bara. En mæli ekki með þessari aðferð við viðkvæma. Þangað til næst, Arna