<


Linkarnir okkar
Dagbækur

Arnar Smári

Auður, Emelía og Anna Eir

Eiríkur Freyr

Hrönn og Georg

Sólveig Birta

Þóra, Hákon og Vigdís Tinna

Birgitta Rún NÝTT

Margrét Vilborg

Edda, Gummi, Ýr og Elísabet

Kristín Rósa



Aðrar síður

BMC
Heimasíða labbsins

Uppsala
Uppsala Universitet


Skype






Teljari:
Site Meter
baby
babies28.1.06
Arna ritar frá Svíþjóð 12:04 f.h.
Loksins loksins þá er ég búin að setjast niður og hlaða niður nokkrum myndum á netið. Þær eru nýlegar, síðan í desember og núna í janúar. Ýtið hér.
kv Arna


4.1.06
Arna ritar frá Svíþjóð 4:19 e.h.
Þá eru jólin alveg að verða búin. Þetta voru heldur betur skemmtilega og afslappandi jól. Þó að við höfum saknað ykkar svakalega mikið. Við erum búin að verða okkur úti um þessa helstu jólahluti eins og dúk undir tréið og kúlur fyrir tréið. Svo slógum við aldeilis í gegn hjá okkur sjálfum í jólamatseldinni. Enda fengum við svo góðar uppskriftir frá foreldrunum. Einnig viljum við þakka öllum sem að sendu okkur og auðvitað Arnari Smára pakka. Allir voru þeir algjör snilld.
Einnig var gaman hversu margir voru duglegir að senda okkur jólakortin á Apelgötuna.
Áramótin er svoldið öðruvísi hérna í sambandi við flugeldana. Þetta var nú bara ekki neitt miðað við heima á Íslandi. Við Karvel keyptum einn pakka með nokkuð stórum flugeldum og svo eina tívolíbombu sem var seld í hólknum. Sem kom svo í ljós að voru 3 2" bombur. Hún vakti mikla hrifningu hjá þeim sem voru úti í garðinum eða á svölunum. Auk okkar þá voru Hrönn og Georg með flugelda annars var fólk bara úti að skála og horfa á flugelda hjá öðrum.
Hrönn og Georg komu til okkar á gamlárskvöld og við fórum til þeirra á jóladag. Á gamlársdag fóru ég og Hrönn í sund með litlu strákana okkar á meðan Karvel byrjaði á kalkúninum. Þetta var hin besta hugmynd. Þeir skemmtu sér konuglega í sundi og svo í bílnum á leiðinni heim sofnuðu þeir eftir að ræða aðeins saman. Ekkert smá fyndið að heyra í þeim.
Húsnæðismál: jæja þau eru nú sífellt að breytast. Núna erum við búin að fá stúdentaíbúð sem er 3ja herbergja íbúð og leigan er ódýrari en á þeirri sem við vorum búin að fá. Þannig að þeir sem vita hvar Sigrún og Snævar eiga heima þá erum við að flytja í sömu götu, sama dag og þau eru að flytja út. Maður getur nú ekki annað en brosað.

Þangað til næst,
Arna



Nýjar myndir 12 Mars 2007!!!


Gamlar fréttir






arna&karvel
Visitor Map