Arna ritar frá Svíþjóð 10:15 f.h. Gleðileg Jól & Farsælt Komandi Ár
kveðja frá Apelgötunni.
21.12.05
Arna ritar frá Svíþjóð 8:34 f.h.
Jólasnjórinn kominn og er kannski að fara. Vonandi nær hann yfir helgina og lengur. Eins og alltaf þá er nóg að gera hjá okkur. Í dag förum við í bankann og fáum lánið okkar fyrir nýju íbúðina. Í raun er þetta bara útborgunin við tæknilega séð tökum ekki lánið fyrr en við fáum íbúðina. Óþarfi að vera borga vexti þegar maður býr ekki þar. Sigrún og Snævar fara til Íslands í dag og við óskum þeim góðrar ferðar. En þau koma ekki tilbaka fyrr en 3. jan. Þá tekur við hið ógurlega sparsltímabil og laga íbúð tímabil. Þar sem að við erum búin að selja þá var samið þannig að við afhendum þann 1. mars. Sem þýðir að við flytjum í leiguíbúð í 3 mánuði þangað til við fáum okkar nýju í lok júní. Það fyndna við það er að þessi íbúð sem við flytjum í. Ja sko við þekkjum einn af smiðunum sem tók þátt í því að byggja húsið. Nánar tiltekið þakið. Það er ekki meira né minna en okkar eigin Karvel. Planið lítur þannig út. Flytja með eitt barn í leiguíbúð, eignast annað barn og flytja með 2 börn í nýju íbúðina. Þannig að núna verða allir sem við þekkjum hérna í Uppsala beðnir um aðstoð við flutningana.
kær jólakveðja Arna
17.12.05
Arna ritar frá Svíþjóð 2:06 e.h.
Þá erum við búin að selja. Tattaraaaa. Þetta er víst strákur frá Skåne sem að keypti íbúðina. Þetta er það eina sem við vitum um hann og hann er 25 ára. Skrifað var undir pappírana á föstudaginn. Um kvöldið var skálað í bubblum og cider (fyrir mig) með Sigrúnu og Snævari. Ég verð nú bara að segja líka hvað við vorum með í kvöldmatinn því að hann var nú svo spes. Við fendum uppskriftina í búðinni. Þetta var nefnilega kjúklingabringur með kanilsósu. Hljómar skrítið en var þetta dúndrandi gott. Ef einhver vill vera svo djarftur að prufa þá er bara að spyrja um uppskriftina. Eftir þessar brjáluðu vikur þá erum við nokkuð sátt við það að jólin séu að koma svo við getum farið að slappa af. Það er búið að setja upp jólaskrautið og jólapakkarnir streyma inn. Saga systir fór heim til Íslands á föstudaginn og við söknum hennar svakalega mikið. Í kvöld erum við Karvel að fara út á djammið. Eða næstum því. Það er jólahlaðborð hjá vinnunni hans. Svo að við erum að fara á Flustret að borða og kannski eitthvað djamm á eftir. Ef ég ætti að lýsa Flustret fyrir ykkur heima þá mundi ég segja að þetta væri svoldið líkt Kaffi Reykjavík.
Bara vika til Jóla.
kær jólakveðja
14.12.05
Arna ritar frá Svíþjóð 12:14 f.h.
Loksins núna er litla fjölskyldan að jafna sig eftir þessi ógurlegu veikindi. Sem endaði með því að Karvel fékk líka fúkkalyf. En við erum hægt og rólega að verða fín aftur. Helstu fréttir af húsnæðismálum er það að við skrifuðum undir kaup á 3ja herbergja íbúð í dag. Hún er svaka flott 100 fm en því miður þá fáum við hana ekki fyrr en í júní. En það er alveg þess virði að bíða eftir henni. Síðan í miðjum veikindunum tókst okkur að taka til og gera fínt fyrir sýningu á okkar íbúð. Með dyggri hjálp Sögu systir. Íbúðin var sýnd á laugardaginn (10.12.2005) og svo á mánudagskvöldið (12.12.2005). Svo núna bíðum við bara róleg og látum fólk bjóða á fullu. Því kerfið hérna virkar meira eins og uppboð. Fólk hringir í fasteignasalann og setur inn tilboð. Spennandi að sjá hvar það endar.
Auka upplýsingar: Fyrir þá sem vilja senda okkur jólakort þá er adressan: þar sem við komum ekki heim um jólin.
Apelgatan 10 754 35 Uppsala Sverige
kærar jólakveðjur Arna og co
6.12.05
Arna ritar frá Svíþjóð 3:15 e.h.
Þá er litla fjölskyldan komin heim frá lækninum. Allir veikir nema Karvel. Vona bara að hann verði ekki veikur. Við ASK vorum útskrifuð með fúkkalyf og vonandi virka þau fljótlega. Annað mál á dagsskrá er að íbúðin okkar er komin á sölu og vonandi koma margir á sýninguna á laugardaginn og mánudaginn. Svo erum við líklega búin að finna okkur nýja íbúð. Nánari fréttir koma seinna. kv Arna stíbblaða
2.12.05
Arna ritar frá Svíþjóð 3:19 e.h.
Jæja þá meiri fréttir. Á þriðjudaginn fórum við í sónar og allt lítur mjög vel út og 27. apríl stendur ennþá. Ég er búin að skanna inn myndirnar en því miður þá tókst ekki að senda þær heim í tölvuna. Þannig að þær eru fastar í vinnutölvunni minni. Set þær á netið eftir helgina. Arnar Smári er búin að fá fyrsta stóra kvefið sitt með hita og öllu. Hann var með svakalega rauðar kinnar og átti svoldið erfitt með að sofa. Fannst eiginlega best að sofa ofan á mömmu sinni EN lét pabba sinn alveg vera. Í nótt setti ég bækur undir gaflinn á rúminu hans svo hann lægi í smá halla. Og viti menn hann svaf alla nóttina í rúminu sínu. Algjör snilld. Núna áðan var fasteignasali í heimsókn og við ætlum að keyra á sýningu á okkar íbúð um næstu helgi. Vonum bara að allt gangi vel með það. Annars er allt á fullu í leitinni að nýju en enn vitum við ekkert fyrir víst. Þannig að við bíðum með að segja fréttir frá því.