Arna ritar frá Svíþjóð 10:25 f.h.
Það var nú langt síðan ég skrifaði hérna á heimasíðuna. En svo er það þegar maður hefur engan tíma til þess. Helstu fréttir er að ég er að vinna eins og brjálæðingur og strákarnir skemmta sér konunglega saman. Arnar Smári er byrjaður að sýna okkur hversu stór hann er og kann meira að segja "high 5". Karvel er að reyna að kenna honum að benda á hausinn en það tekst ekki vel því hann horfir bara á pabba sinn og brosir. Svíarnir skilja ekkert í þessu með að rétta hendurnar fyrir ofan haus til að sýna hversu stór maður er. Ég í minni ókunnáttu hélt nú að þetta væri bara eðlilegt en nei. Svíarnir föttuðu ekki neitt, en finnst nú samt gaman að sjá hann gera þetta. Hann kann að skríða með mismunandi hraða. Ekkert smá sætt þegar hann er alveg á fullu að skríða. Svo fer hann um alla stofuna og stendur upp og fer meðfram öllu sem hann getur haldið í . Við foreldrarnir erum stundum að athuga hvort hann vilji ganga á milli okkar en um leið og hann missir takið þá fer hann niður á hné og skríður restina. Allavega nóg að gera hjá okkur. I kvöld fer ég í höllina á Novemberfest, sem er í boði háskólans. Það þýðir 3ja rétta kvöldmatur og dansiball eftir á. Svo á laugardaginn þá ætlar Karvel á ráðast á baðherbergið og laga flísarnar. OOoog svo á sunnudag þá verður jólaglögg hjá Íslendingafélaginu með langa nafninu. Í þetta skipið er það í Uppsölum. Svo reyni ég kannski að vera duglegir að skrifa en betra að lofa ekki of miklu. Jæja núna ætla ég að fara og athuga hvort ég ætli að eyðileggja HPLC tækið. Ekki besti vinur minn núna.