Arna ritar frá Svíþjóð 4:07 e.h.
Mikið var að beljan bar. Jæja smá vesen með breiðbandstenginguna. Svo að loksins getur maður skrifað fréttir á netið. Ungbarnasundið er það helsta að frétta um þessar mundir. Á fimmtudaginn var þriðji tíminn og ég fór oní með honum. Það sem skemmtilegt var við þennan tíma var að hann brosti og hló næstum því allan tímann og sparkaði eða reyndi að synda á fullu. Sigrún og Snævar komu og horfðu á og fannst mjög gaman að eigin sögn. Þannig að það var ákeðið að fara sjálf í sund á laugardeginum. Sem var afar vel heppnuð sundferð. Þrátt fyrir það að við Sigrún urðum að vittni að afar ó sundmannslegu athæfi. Eftir mikla sundævintýrið skelltum við okkur á kaffihús og sátum úti í góða veðrinu. Alveg þangað til það fór að rigna. Þegar við sátum þarna í rólegheitum og gæddum okkur á góðgæti, dritar þá ekki bara dúfa á öxlina hennar Sigrúnar. Munaði svoldið litlu að þetta færi beint í hárið. Jæja þá tekur við tímabil heimsókna. Á þriðjudaginn kemur Gunna frænka og Baldi í heimsókn. En þau voru í skemmtiferð í Gautaborg. Svo koma foreldrar Karvels þann 21. júní. Daginn eftir afmælið mitt ef það vildi nú svo til að einhver vildi senda mér pakka með þeim. Hummm bara svona hugmynd. ;-)
kveðja Arna
8.6.05
Arna ritar frá Svíþjóð 11:53 f.h.
Hæ hó smá kvart. Ég er ekkert smá óheppin. Fyrst fékk ég smá kvef og hálsbólguvesen. Ekki nóg með það. Alveg þegar að það var að batna þá lá ég eitthvað vitlaust í rúminu og vaknaði með hausinn í lás. Það eina skemmtilega er að Arnari Smára finnst svakalega gaman í sundi. Við fórum í gær og aftur á morgun. Kannski ef allt gengur vel þá förum við sjálf á laugardaginn. Svo þarf ég að fara til Stokkhólms til að sækja um vegabréf handa krílinu. Ekkert smá vesen með þessa mynd. Vona að þeir samþykki þessa mynd sem við erum með af honum. Eins og alltaf þá líður tíminn svakalega hratt. Ég missti gjörsamlega af maí. En góðu fréttirnar eru það að ég á bráðum afmæli. Bara 12 dagar þangað til.
kv Arna
3.6.05
Arna ritar frá Svíþjóð 12:32 e.h.
Ég er búin að gera þvílíkt afrek. Ég er búin að láta framkalla fyrsta skammtinn minn af digital myndum. Þá aðallega af Arnari Smára. Þetta tókst bara svo vel. Góð gæði og gott verð. Annars er helst að frétta að við erum byrjuð í ungbarnasundi og í dag förum við í fyrsta skipti í laugina. Skrifa meira seinna. kv Arna