Arna ritar frá Svíþjóð 11:45 e.h.
Þá er ég loksins búin að því. Ég var að kaupa flugmiða heim til Íslands. Við komum með erfingjann þann 26. júlí og verðum alveg heilar 4 vikur og 2 daga. Fyrir þá sem nenna ekki að pæla í því þá förum við 25. ágúst aftur til Sverige. Ég er strax orðin spennt að hitta alla.
bæjó
19.5.05
Arna ritar frá Svíþjóð 2:57 e.h.
Jæja nóg að gera hérna eins og venjulega. Alltaf þegar ég ætla að fara að skrifa þá vaknar ASK. Held að hann finni þetta á sér því að stundum er ég nýbúin að leggja hann eða hann er búinn að vera sofandi í smá tíma. En alltaf vaknar hann. Jæja þá er Júróvision í kvöld. Vona bara að við komumst áfram því að það koma nokkrir í heimsókn á laugardaginn til að horfa á keppnina. Verður ekki gaman ef að við erum svo ekki með í úrslitunum.
Jæja þá er hann vaknaðu aftur.
Heyrumst
2.5.05
Arna ritar frá Svíþjóð 8:41 e.h.
Ekki gleyma myndasíðunni. klikkið hérna til að komast þangað.
Arna ritar frá Svíþjóð 11:58 f.h.
Jæja þá er Valborgarhátíðin liðin. En fyrir þá sem vita það ekki þá var hún á laugardaginn, 30. apríl. Eins og í fyrra þá tóku Karvel og Snævar þátt í bátakeppninni ásamt Bjössa í ár. Í ár sigldu þeir niður Fyrisån á kafbát. Sem var útbúinn með risaslöngu úr traktordekki, þrýstikút og tilheyrandi. Þessi búnaður gerði það að verkum að þeir gátu sokkið og lyft, eins og kafbátar gera. Þar sem að keppnin átti 30 ára afmæli í ár þá voru fleiri verðlaun en vani er. Jæja ég ætla ekki að draga þetta á langinn. En strákarnir unnu dadaradada VERKFRÆÐIVERÐLAUNIN. Þeir voru svo ánægðir og gátu ekki hætt að brosa. Jæja lýsing frá deginum. Það var vaknað svaka snemma kl 6 því að strákarnir þurftu að mæta snemma í bátakeppnina. Það vildi svo til að ASK vaknaði kl 5 þannig að ég sofnaði ekkert aftur. Jæja þá var notað tækifærið og skroppið í sturtu meðan Karvel var ennþá heima. Picknik maturinn undirbúinn ásamt Sigrúnu, Auður og Emelía sóttar á lestarstöðina og farið niður í bæ. Ég fékk þessa fínu hugmynd að hafa ASK í beltinu ekki vagninum þegar við hofðum á bátakeppnina. Ég sá nú ekki eftir því með miðbæinn troðfullan af fólki. Hann var alveg eins og engill svaf alla keppnina. Eftir að við vorum búnar að sjá strákana röltum við eftir ánni niður í garðinn þar sem picknikið var haldið með prompi og prakt. Þar svaf ASK ennþá en vaknaði svo aðeins til að fá sér að drekka. Svo sofnaði hann aftur. Þessi útivist gjörsamlega svæfði drenginn allan daginn. Mér leist ekki alveg á veðrið en sem betur fer rigndi ekki þegar við sátum í garðinum. Eftir picknikið fóru Sigrún og Snævar á Stokkhólmsnation og stelpurnar heim til Stokkhólms. Litla fjölskyldan gekk frá dótinu og rölti smá hring um bæinn og skundaði svo heim til að undirbúa grillið um kvöldið. Það vill svo skemmtilega til að Hjalti Már frændi er hérna í þjálfun. Eins og ég hef sagt frá áður. Hann átti að fara í prófið á laugardaginn en hermirinn var bilaður svo að hann kom um kvöldið í grill. Ásamt nokkrum vinum frá labbinu, Sigrúnu og Snævari og Bjössa og co. Þar sem að strákarnir unnu verðlaun fóru þeir niður í bæ að taka á móti þeim. Þannig að íbúðin tæmdist af fólki strax eftir að við vorum búin að borða grillmatinn. Gestir sem urðu eftir voru bara stelpur og ASK auðvitað. Þannig að við fengum okkur eftirrétt, kladdköku með rjóma og jarðaberjum. Amm nammi namm. Er búin að bíða ekkert smá lengi eftir að geta keypt jarðaber. Eins og stelpum er einum lagið þá var mikið talað, hlegið og sungið. Alveg þangað til að Karvel og Snævar komu heim aftur. En greyin voru ekki ánægðir með verðlaunapartýið. Fannst ekki vera gaman og verðlaunin ekki alveg það flottasta. Ein plastönd. Þannig að núna er verið að skipta dögunum á milli strákana hver fær að hafa öndina. Ég held að þeir hafi verið að vonast til að fá í verðlaun keppnisgjöldin fyrir næsta ár. Sem sagt til að taka saman daginn þá var þetta hinn skemmtilegasti dagur og velheppnaður í alla staði.