<


Linkarnir okkar
Dagbækur

Arnar Smári

Auður, Emelía og Anna Eir

Eiríkur Freyr

Hrönn og Georg

Sólveig Birta

Þóra, Hákon og Vigdís Tinna

Birgitta Rún NÝTT

Margrét Vilborg

Edda, Gummi, Ýr og Elísabet

Kristín Rósa



Aðrar síður

BMC
Heimasíða labbsins

Uppsala
Uppsala Universitet


Skype






Teljari:
Site Meter
baby
babies27.4.05
Arna ritar frá Svíþjóð 10:57 f.h.
Þá styttist í laugardaginn. Bátasmíðin gengur mjög vel og á þetta eftir að verða hinn glæsilegasti kafbátur. Á morgun erum við að hittast með krílin sem vorum saman í foreldrafræðslunni. Spennandi að sjá alla. Því miður kemst Karvel ekki vegna vinnu þar sem að við hittumst kl 2.
Í gær fór ég með Ylvu í hádeginu að fá okkur eitthvað að borða. Hún stakk uppá þessum svaka fína stað. Rúmgóður og fínn matur. Þegar ég meina rúmgóður, þá er ég að tala um gott pláss fyrir vagninn. Og viti menn þegar við komum inn eru þá ekki helling af mömmum þar inni með vagnana.
Þangað til næst


23.4.05
Arna ritar frá Svíþjóð 10:16 e.h.
Þá er bátasmíðin mikla hafin. Í dag fóru Karvel, Snævar og Bjössi á fund vegna bátakeppninnar. Það var svo mikill kraftur í þeim að þeir byrjuðu strax að smíða grindina fyrir bátinn, sem að verður "kafbátur" í ár.
Ég fór í fýluferð í bæinn í dag. Planið var að sækja buxur sem var að stytta fyrir mig. En þær voru ekki komnar þó að mér hafi verið lofað þeim í gær. Það var pakkað af liði i bænum þannig að við Arnar Smári flúðum. Það var svo gott veður að við löbbuðum til strákana og kíktum á bátasmíðina. Á svæðinu er mikið um að vera auk þess getur maður keypt sér grillmat og ýmislegt að drekka á barnum. Maður er komin í svaka vorfíling eftir að hafa gætt sér á fyrsta grillaða hamborgaranum.

Sól og sumarkveðjur


21.4.05
Arna ritar frá Svíþjóð 9:18 e.h.
Gleðilegt Sumar


13.4.05
Arna ritar frá Svíþjóð 6:32 e.h.
Loksins hef ég tíma til að skrifa á síðuna. Helling er búið að gerast síðan síðast. Saga systir er komin og farin. Mest vorum við að dúlla okkur með Arnari Smára auk þess fórum við í nokkrar bæjarferðir og eitt "ammælis"matarboð hjá Snævari. Daginn sem að við ákváðum að fara til Stokkhólms þá var veðrið ekki gott. Það var þvílík rigning og plönum var aðeins breytt. Við rændum bílnum af Karvel og fórum í mollið í Kista. Sem er í raun mjög gott. Helling af búðum af mismunandi tagi. Sérstaklega barnavænt því að það kostar ekki neitt fyrir ólettar og mömmur að fara á klóið. Algjör snilld þó að það kosti nú ekki mikið.
Síðustu helgi var mikið um að vera hjá fjölskyldunni. Á laugardeginum var kaffiboð hjá Sigtuna fólkinu. Sigrún og Snævar voru einnig með í för. Ástæðan fyrir boðinu var fína nýja herbergið hennar Svölu. Á sunnudeginum fórum við í hádeginu til Almunge þar sem að Francoise býr. Þar var boðið uppá þvílíkan kjúklingarétt og salat + eftirrétt. Svo bauð 6 ára dóttir þeirra uppá skemmtiefni. Hún talaði og talaði allan tímann sem að okkur fannst hið besta mál þó að foreldrarnir eru kannski ekki alveg sammála því. En þau voru svo góð að lána eða gefa okkur gamla vagninn sinn, sem að við getum sett útá svalir fyrir Arnar Smára. Engin lyfta í húsinu svo að þetta er hið besta mál.
Svo fengu við þær skemmtilegu fréttir að Hjalti Már frændi er að koma til Uppsala á föstudaginn. Hann er búinn að fá vinnu hjá Flugfélagi Íslands og er að fara í þjálfun á Arlanda. Það verður gaman að hitta hann á milli æfinga.
Talandi um heimsóknir þá koma Svava og dætur hennar 5. maí til 9. maí. Við höfum aldrei fengið svona unga gesti þannig að við verðum að finna uppá einhverju svaka skemmtilegu. Hummm hvað gæti það verið.......

kveðja Arna



Nýjar myndir 12 Mars 2007!!!


Gamlar fréttir






arna&karvel
Visitor Map