<


Linkarnir okkar
Dagbækur

Arnar Smári

Auður, Emelía og Anna Eir

Eiríkur Freyr

Hrönn og Georg

Sólveig Birta

Þóra, Hákon og Vigdís Tinna

Birgitta Rún NÝTT

Margrét Vilborg

Edda, Gummi, Ýr og Elísabet

Kristín Rósa



Aðrar síður

BMC
Heimasíða labbsins

Uppsala
Uppsala Universitet


Skype






Teljari:
Site Meter
baby
babies31.3.05
Arna ritar frá Svíþjóð 8:31 e.h.
Hæ hó

mamma og pabbi fóru heim á sunndaginn, páskadag. Við skutluðum þeim útá flugvöll og byrjuðum á páskaeggjunum þegar við komum tilbaka. Nammi namm. Nóa páskaegg. Við Karvel fegum hvort sitt og Arnar Smári fékk 2. Eitt fra ömmu og afa og hitt frá Bústaðarveginum. Annars er ekki mikið búið að gerast hérna. Mánudagurinn fór í mikið afslappelsi.
Í gær var fjárfest í fyrstu snuddunni. Ég vildi óska þess að við hefðum tekið upp á video viðbrögðin hans þegar hann prufaði hana fyrst. Greyið gretti sig svo mikið og kúgaðist. Við foreldrarnir náttúrulega hlógum eins og svín. En svo var prufað aftur og þá náði hann betri taki á henni og allt gengur vel. Hann er eiginlega búin að sofa svaka mikið eftir hann byrjaði að nota hana.
Á morgun förum við svo útá flugvöll til að sækja Sögu systir. Ammm meira íslenskt nammi

kv Arna


24.3.05
Arna ritar frá Svíþjóð 8:57 e.h.
Nýjasta nýtt

videó af Arnari Smára, tæpar 7 mínútur langt. Hægt að skoða það í Quick Time Player. Hægt að sækja það á hér


kvedja fra Apelgötunni


23.3.05
Arna ritar frá Svíþjóð 10:46 e.h.
Hæ hæ
nóg að gera á Apelgötunni núna. Mamma og pabbi eru í heimsókn og verða þangað til á sunnudaginn. Saga systir kemur svo 1. apríl. Skrifa meira seinna. Ekki gleyma að kíkja á heimasíðuna hans Arnars Smára.

kv Arna


16.3.05
Arna ritar frá Svíþjóð 11:35 f.h.
Í gær fórum við Karvel að skrifa á pappírana sem staðfesta hver pabbin er. Þannig að núna eigum við hann bæði, ekki bara ég. Í gær náði ég ekkert að skrifa því miður því að það er fundur á föstudaginn svo að ég vona að dagurinn í dag og á morgun verði betri. Á morgun fer Karvel fyrir rétt sem vittni. Karvel var úti á bensínstöð (fyrir næstum því ári síðan) og sá þar mjög drukkin mann. Ekki nóg með það þá var hann að keyra. Auk þess þá var hann ekki með ökuskírteini. Vona bara að allt gangi vel.
Svo á laugardaginn þá koma mamma og pabbi. Kannski að maður fái íslenskt páksaegg. Humm hver veit......

kv Arna


12.3.05
Arna ritar frá Svíþjóð 8:36 f.h.
Jæja,
lífið gengur sinn vanagang hérna á Apelgötunni. Í gærkvöldi komu Sigrún og Snævar í heimsókn. Eftir að við fengum okkur kjötbollur að borða var ákveðið að leika sér aðeins í kariokee. Arnar Smári var aðeins að kvarta yfir maganum sínum í nokkrar mínutur en svo sofnaði hann. Svo hélt Sigrún "frænka" á honum sofandi lengi lengi. Honum leið svo vel að hann gleymdi að vakna til að drekka.
Það er gaman fyrir mig að fá gesti í heimsókn, þar sem að ég hitti ekki marga núna. Fyndið hvað það er mikilvægt fyrir mann að tala við fullorðið fólk. Ég get talað við Arnar Smára en það er nú lítið um svör á þeim bænum. Í kvöld förum við í partý til Hákonar og Þóru, þar sem að Hákon á afmæli. Vona bara að Arnar Smári verði góður.

kv Arna


11.3.05
Arna ritar frá Svíþjóð 11:31 f.h.
Núna er ég búin að vera svaka dugleg og hlaða myndunum af myndavélinni, búa til myndaalbúm og flytja þær yfir á netið og ekki gleyma logga mig inn a blogger og skrifa þessar línur. Vá hvað ég er dugleg. Hihihihih allavega þá er þetta nokkuð stórt afrek því að manni tekst nú ekki að gera mikið annað en að sjá um Arnar Smára og vinna í greininni. Jæja góðir lesendur nú koma nýjar myndir af Arnari Smára og nokkrum gestum.

Auk þess þá erum við Karvel búin að vera að búa til blogg handa Arnari Smára. Hér er slóðin.


1.3.05
Arna ritar frá Svíþjóð 5:27 e.h.
Hæ hæ allir,

ég vil byrja með því að þakka fyrir allar hamingjuóskir, blóm og gjafir. Ég er enn að fatta að ég sé orðin mamma. Sem er alveg meiriháttar. Ég get horft á hann endalaust.

Jæja smá um fæðinguna. Eins og flestir vita þá var ég sett 3. mars sem er ekki fyrr en eftir 2 daga. Þannig að ég var ekki einu sinni byjuð að undirbúa mig að fæðingin væri að nálgast. Mikið var planað helgina 18 til 20. feb. Mikil tiltekt átti að eiga sér stað, Íslendingapartý átti að vera þann 19. feb með miklu húllumhæ. Einnig um þessa helgi ætlaði ég að pakka í þessa blessaða tösku með dóti fyrir og eftir fæðinguna. Sem sagt þá gerðist allt mjög hratt. Þegar vatnið fór var ég í vinnunni. Búin að vinna svolidið lengi þann dag, mæli ekki með því. En hvenær á maður að vita hvenær maður á að taka því rólega fyrir fæðingu. Ég meina það möguleiki á því að það komi í heiminn er heill mánuður. Allavega ég sat á bekk við innganginn í vinnunni að bíða eftir að Karvel kæmi að sækja mig. Ég var að tala við Karvel og athuga hvar hann væri þegar buxurnar mínar urðu rennandi blautar. Ég labba tilbaka á labbið mitt og Karvel brunar af stað. Sem betur fer voru Birgitta og Ylva ennþá á labbinu. Það var ekkert smá fyndið að sjá andlitið á Karvel þegar hann sá buxurnar mínar. Því hann var nú ekki viss um að vatnið væri farið í alvöru.
Svo hélt vatnið áfram að fossa þannig að við Karvel náðu bara fram á gang á klósett. Eftir smátíma komumst við heim og ennþá hélt fossinn áfram. Karvel hringdi uppá spítala og þau vildu að við kæmum í tjékk.
Sem betur fer þá pökkuðum við niður í tösku því að við fengum ekki að fara heim aftur. Eftir að hafa prufað nálastungu, heita sturtu, hlátursgas og mænudeyfingu ásamt 12 tíma vistá spítalanum. Kom litli prinsinn í heiminn. Starfsfólkið á fæðingardeildinni var alveg meiriháttar. Þar sem að allt gekk svo vel þá völdum við að fara heim eftir 6 tíma. Læknir var búin að skoða Arnar Smára og ég var búin að gefa honum brjóst. Síðan fengum við ljósmóðir heim til okkar daginn eftir. Mér fannst það mjög gott að fara strax heim. Svo næstu daga var hringt í okkur á morgnana og athugað hvort allt gengi vel og hvort við vildum fá heimsókn.

Á fimmta degi fórum við tilbaka á spítalann þar sem að læknir skoðaði hann, PKU test og heyrnarpróf var framkvæmt. Allt gekk mjög vel og hann er með góða heyrn. Við erum ekkert búin að heyra frá PKU testinu og það er af hinu góða. Þeir hringja bara ef það er eitthvað að.

Svo fórum við í gær að vikta okkur á heilsugæslustöðinni. Hjúkkan var svaka hissa á því hversu góður hann var. Arnar Smári var búinn að þyngjast um 255 grömm, þannig að hann dafnar vel.

Á morgun verðum við Arnar Smári ein heima því að fríið hans Karvels er búið. En það er allt í lagi því að Karvel er búinn að vinna kl 4.

Kær kveðja,
Arna mamma.



Nýjar myndir 12 Mars 2007!!!


Gamlar fréttir






arna&karvel
Visitor Map