Karvel ritar frá Svíþjóð 7:46 e.h.
Jæja þá er veiði helgarinnar afstaðinn. Án efa sú allra skemmtilegasta veiði sem ég hef komist í hér. Ég fór með vinnufélaga Örnu upp til Falun í dölunum. Við fórum að veiða Orra eða á sænsku toppjakt ("topp" vegna þess að þeir sitja alltaf efst i trjánum á beit) Það var mikið gengið og fundum fugl lengst upp á fjalli en hann var gáfaðari en við héldum og flaug. Daginn eftir fundum við
einn fugl hvor en ekkert skotið. Þannig það var bara pakkað og haldið af stað heim. Þegar við vorum búnir að keyra 14 metra (já 14 metra) sat ekki einn nánast við veginn uppi tré. Það var gerð tilraun og skotið, en færið var langt og ekki mikið að hitta og ákváðum við bara að reyna aftur á næsta ári... Sem sagt ótrúlega skemmtilegt og hlakka mikið til að fara aftur á svona veiðar.
15.1.05
Karvel ritar frá Svíþjóð 9:34 e.h.
Jæja þá erum við loksins kominn með nýja tölvu heim og ég er að skrifa í fyrsta skiptið í 1 ár.
Ég fór að veiða í dag og við skutum 2 dádýr. Eitt hljóp ca 5 metra frá mér ég hafði ekki nægan tíma til að skjóta og ákvað ég þá að leyfa því að lifa lengur.... Örnu líður bara vel eftir erfiðan dag í gær með smá verki. Á morgum ætlum við að smíða bekk í eldhúsið. Myndirnar koma að verkinu loknu.