Jaeja godir halsar. Thad er nefnilega bokrea nuna i Uppsala. Vid erum sko ekki ad tala um einhverjar kronur i afslatt heldur naestum thvi gefins baekur.
Eg for a thridjudaginn og keypti mer bokina um XHTML for dummies (a saensku audvitad), thvi ad eg er ordin svo mikid tolvunord. Venjulega kosta thessar baekur um 350 - 400 SEK, sem ad vid nalgum bara upp ad 3500 til 4000 ISK. Viti menn keypti eg hana ekki a 29 SEK, nu verdid thid ad reikna sjalf !
Eftir thessi godu kaup var Karvel alveg aestur ad fara a thessa utsölu. Svo vid kiktum i baeinn i gaer. Forum i adalbokabudina sem allir fara i, Akademiska bokhandeln . Thar keytum vid ekki meira ne minna en 5 baekur: vegahandbok fyrir Svithjod, bakelsis og mexikana matreidslubok, saensku slagurordabokina (madur verdur audvitad ad kunna eitthvad i thvi) og ad lokum villibradarmatreidslubok. Karvel var i halfgerdu menningarsjokki thvi hann hefur aldrei keypt eins mikid ad bokum, thad er ad segja sjalfviljugur. I raun sagdi hann ad hann hefdi aldrei keypt bok. Honum fannst thetta svo skemmtilegt ad kannski fyllist allt heima hja okkur ad bokum.
Jaeja nuna verd eg ad haetta og fara ad skipuleggja, med Sigrunu, skidaferdina ogurlegu.
Kvedja
25.2.03
Arna ritar frá Svíþjóð 5:25 e.h.
Jaeja godir halsar,
eins og alltaf tha er nog ad gera a labbinu. Eg hef ekki haft tima til ad skrifa vegna anna. En nu kem eg med frettir sidustu daga. A laugardaginn for Karvel a heraveidar en thvi midur fengu their engann hera. En thegar their voru ad setja upp fuglahus sau their spor eftir dyr sem kallast a finni islensku "loðdyr". Thetta er einhvers konar kattartegund. Kannski skyld pumu, er ekki alveg viss.!
Thegar Karvel kom heim forum vid i villingahverfid Gottsunda i kaffibod til Kristinar Jons og Palma. En Helga fraenka hennar Kristinar var i heimsokn med Huldu, sem er ordin 6 manada. En thaer bua i Gautaborg. Thad var svaka gott braud og afar god sukkuladi kaka i bodi og eftir ad vid vorum buin ad borda yfir okkur spiludum vid Ordabokar-Fimbulfamb. Mjog skemmtilegt. Vid Sigrun slogum i gegn i thvi ad plata hina uppur skonum.En Sigrun var adeins meiri platari en eg.
Svo snemma morguns sunnudagsins lögdum vid Karvel i viking med Sigrunu og Snaevari. Vid leigdum bil hja Norsk Hydro. Sem kostadi adeins 300 SEK, med otakmorkudum km fjolda.
Vid byrjudum ad fara til Sigtuna, afar saetur baer med litlum husum, gömlum rustum, minnsta radhusinu (örugglega i öllum heiminum) og afar skemmtilegu kaffihusi. Keyrdum i gengum Enköping. A leidinni til Strängnäs keyrdum vid fram hja kokosbollukarlinum, sem var ad selja kassa af kokosbollum vid eitt hringtorgid. Vid audvitad keyrum heilan hring og Sigrun keypti einn kassa med 100 kokosbollum i (nei nei bara djok thad voru bara 20 hahahah). I Strängnäs er mjög flott vindmylla og svo skodudum vid slottid i Marifred. Ad lokum keyrdum vid ad Skerjargardinum og svo heim til Uppsala.
I tilefni af konudeginum forum vid og keyptum okkur thailenskan mat og forum med hann heim til okkar Karvels. Eftir ad hafa bordad afar sterkan mat spiludum vid Actionary og Trivial. Lidin voru strakar a moti stelpum. I hita leiksins gleymdu strakarnir ad thad vaeri konudagurinn og rulludu okkur Sigrunu upp i Actionary og rett unnu Trivial.
Thad sem er eftir af vikunni fer i thad ad skipuleggja skidaferdina, thvi ad vid forum snemma a sunnudaginn til Sälen. Jibbíííííííí.
19.2.03
Arna ritar frá Svíþjóð 11:34 f.h.
Nýjasta nýtt á sídunni: Athugasemdir. Thá getid thid sent okkur línu. Sem fjallar kannski um dagbokarfaersluna eda eitthvad sem thid viljid segja okkur um málefnid.
Endilega notfaerid ykkur thetta.
kvedja
Arna ritar frá Svíþjóð 11:32 f.h.
Hae hae
lífid gengur sinn vanagang hérna i Uppsala. Bara vinna og vinna.
Vid fengum eftir mikid erfidi sent myndband gengum mailid, af Palla thar sem hann var ad rappa a thorrablótinu. Alveg brilliant. Ég sé ad thad hefur verid svaka gaman hjá ykkur.
Karvel er ad fara á laugardaginn á veidar, ekki elgsveidar thví tímabilid er búid heldur héraveidar (held ég). Planid var ad halda loksins innflutningspartýid um helgina en thví var frestad vegna skorts á fjárlögum. Thannig ad nú stefnum vid á ad halda thad einhverja helgi eftir 9.mars, thegar vid komum heim úr skídaferdinni.
kvedja
17.2.03
Arna ritar frá Svíþjóð 12:20 e.h.
Jaeja nýr mánudagur,
eftir vel heppnada helgi. Eins og ég skrifadi á fimmtudaginn thá fórum vid á myndina Kopps. Alveg brilliant mynd, mjög fyndin. Vid Karvel maelum med henni. Endilega taka hana ef hún kemur á videoleigur heima. Svo var thad thorrablótid. Alltaf er thad nu jafn gott ad fa thennan "skemmda" mat. Allir voru mjög ánaegdir ad maturinn komst í taeka tíd. Allavega var mikid bordad, sungid og drukkid. En vid skildum hjólin okkar eftir thví thad tók okkur ekki nema 45 mínútur ad hjóla thangad. Ekki gód hugmynd í fínu fötunum.
Svo í gaer tókum vid straetó til Norby til ad saekja hjólin okkar og hjóludum tilbaka. Thad sem allir voru mjög threyttir leigdum vid bara video og slöppudum af. Thad voru ekki meira né minna en 3 spólur leigdar: Monster´s Inc., Sum of all fears og Shaft. En vid gáfumst upp eftir tvaer.
Kvedja
13.2.03
Arna ritar frá Svíþjóð 4:33 e.h.
Hæ hæ
þessar vikur eru ekkert smá fljótar að liða. Það væri munur ef helgarnar væru ekki líka svona fljótar að líða. Í kvöld verdur PhD-pub hjá okkur a labbinu. Þá hættum við öll að vinna um sex-leytið og fáum okkur nokkra bjóra og kjöftum. Það er mjög skemmtilegt. Annað kvöld og laugardagskvöldið er alveg skipulagt hjá okkur. Annað kvöld ætlum við um sex-leytið að fá okkur að borða á Snerikes (fyrir þá sem ekki vita er það nation-ið okkar) með Sigrúnu og Snævari. Eftir matinn ætlum við að fara í bíó og sjá myndina Kopps. Þetta er sænsk mynd og trailerinn hennar er mjög fyndinn. Úpps þetta verður þrekraun að horfa á sænska mynd med engum texta.
Á laugardaginn um hádegi ætla ég að hjálpa Ylvu að flytja svo þegar það er búið förum við Karvel með Sigrúnu og Snævari á frjálsa æfingu í ju-jitsu (það er að segja ef þau nenna því). Að lokum má nú ekki gleyma þorrablótinu sem verður um köldið. Það er nefnilega ekki alveg víst hvort að þorramaturinn nær í tíma til okkar. En það verður eflaust mjög mikið fjör.
Ég vil nota tækifærið og senda fjölskyldunni stórar þorrakveðjur því þau eru líka að halda þorrablót á laugardaginn. Ég vil líka taka það fram að það er ekki hægt að hringja seint með þeim tilgangi að vekja okkur, því við verðum örugglega vakandi langt frameftir.
Kveðja
11.2.03
Arna ritar frá Svíþjóð 11:21 f.h.
Hæ hæ,
Takmark helgarinnar var að mála listana og það tókst. Við máluðum allan laugardaginn, svaka dugleg. Svo um níu-leytið þegar við vorum alveg að deyja úr lakklyktinni. Hjóluðum við útá pizzustaðinn okkar, keyptum pizzur og fórum með þær til Sigrúnar og Snævars því við gistum hjá þeim. Svo á sunnudeginum fórum við öll til Stokkhólms í menningarferð. Við fórum á Tæknisafnið og Aquvarium safnið sem var alveg ágætt fyrir einn sunnudag. Svo fengum við okkur að borða og tókum næstu lest heim. Þar sem að mikil eftirréttaþörf vaknaði fórum við útí RättPris, þegar heim var komið, og keyptum okkur hráefni fyrir Bananasplit. Svo horfðum við á kassann og borðuðum bananasplitið sem smakkaðist mjög vel.
kveðja
7.2.03
Arna ritar frá Svíþjóð 1:01 e.h.
Jæja,
þetta var alveg meiriháttar. Ég verð eiginlega að byrja a byrjuninni. Allir hittust á slaginu kl. 5 á lestarstöðinni í Uppsala. Miðar keyptir og 5:10 lestin tekin til Stokkhólms. Allir eru: ég og Karvel, Anna-Karin, Lelle (kærastinn hennar), Thomas, Dan og Ylva. Fyrir þá sem eru ekki alveg með það á hreinu hvaða fólk þetta er þá eru þau að vinna með mér á labbinu (fyrir utan Lelle). Þegar til Stokkhólms var komið tókum við tunnelbana til Globen. Þetta svæði gengur mjög mikið útá Globen, stoppustöðin heitir Globen eins og margt annað þarna. Jæja við förum inn við inngang nr.4 og uppá fjórðu hæð. Sætin okkar voru nefnilega á svæði C41, röð 5 og sæti 23 (sko sætið mitt). Alveg brilliant sæti, við vorum sem sagt á langhlið, ekki of nálægt og ekki of langt í burtu. Sáum mjög vel yfir völlinn og hægt að fylgjast vel með pökknum.
Svo þegar við erum komin inn byrjar þessi svaka sýning. Flugeldar, sprengingar og mikilfengleg innganga hjá Svíunum. Tékkarnir fengu bara ad læðast inn á svellið.
Dan og Thomas útskýrðu leikreglurnar aðeins fyrir okkur Karvel. Fyrsta reglan sem maður lærir er: icing, það gerist ef markvörðurinn grípur pökkinn eða pökkurinn fer yfir tvær rauðar línur. Ennnnn það verdur ekki "icing" ef það er einum færra í öðru liðinu. Þetta var dáldið ruglingslegt fyrst þegar við Karvel vorum farin að efast um hæfileika þriggja dómara að sjá það ekki greinilega að pökkurinn fór yfir tvær línur. Þegar "icing" gerist þá er búið að frysta pökkinn, tíminn er stoppaður, dómarinn tekur hann og kastar honum niður í hliðarhringjunum og mótspilarar keppast um að vinna pökkinn. Önnur regla er að það má aðeins "nuddast" við mótspilara en ekki lemja með kylfunni eða halda í kylfu annars leikmanns. Ég set nuddast í gæsalappir, vegna þess að þeir nuddast dáldið harkaleg og oft köstuðu þeir sér á annan leikmann sem var kannski alveg við vegginn og búin að senda pökkinn frá sér. Þú veist bara til að senda smá skilaboð. Mér fannst nú líka dómararnir ekki vera að taka mjög alvarlega á þessu með kylfurnar. Eitt skiptið í leiknum skildu tveir dómarar tvo leikmenn að sem voru að slást og ekkert dæmt á það. Svo getur maður verið rangstæður eins og í fótbolta, en það sem mér fannst mesta svindlið er það að þegar pökkurinn er í loftinu þá mega þeir grípa hann og stilla honum upp fyrir framan sig. Ég get ekki losnað við þetta úr fótboltanum að þetta sé bara hrein og bein HENDI. Eitt skiptið var svo gróft að sænskur liðsmaður greip pökkinn og setti hann niður beint fyrir framan markið. Á þeirri stundu leit nú út fyrir að hann mundi skora en svo var nú ekki. Leiknum er skipt í 3 leikhluta hver 20 mínútur og svo eru tvö 15 mínútna hlé á milli. Fyrsti leikhluti var mest spennandi þvi þá voru flest mörkin skoruð, öðrum leikhluta var mikið reynt en ekkert skorað og að síðustu var þriðji leikhluti mest um slagsmál, (þó að Svíarnir okkar hafi sagt að þetta hefði ekki verið mikið), og eitt mark. Það var hópur af sænskum strákum sem sátu fyrir aftan okkur og þeir voru að bída eftir því þegar leikmennirnir kasta hönskunum og slást. Það var eitt gott merki þess hversu mikil Svía höll þetta er þegar allir i Globen púuðu á dómarana þegar þeir ráku einn Svíann út fyrir slagsmál, sem að Tékkinn byrjadi á en Svíinn svaraði. Höllinn trylltist en báðir voru reknir útaf. Allavega þá var þetta hin mesta skemmtun og leikurinn endaði 4-1 fyrir Svíþjóð.
Ferðin heim var aðeins lengri en venjulega því að það var meira en hálftíma seinkunn á lestinni til Uppsala. Sem var ekki gott því að það var mjög kalt, svo þegar vid Karvel komum heim um hálf tólf leytið þá kíktum við a hitamælinn og þar stóð -16 gráður.
Aðrar fréttir af okkur eru þær að ég er að vonast til þess að við Karvel getum lakkað listana um helgina. En við byrjum kannski á morgun því við erum að fara í matarboð til Kristínar Jón og Pálma í kvöld.
Kveðja
6.2.03
Arna ritar frá Svíþjóð 4:33 e.h.
Jaeja jaeja,
thá er ég á leidinni a lestarstödina til ad fara til Stokkholms a hokkyleikinn. Segi ykkur fra thvi seinna. Gaman gaman, jibbí.
kvedja
4.2.03
Arna ritar frá Svíþjóð 3:03 e.h.
Halló halló,
ég sem hélt að veturinn væri alveg að verða búinn. En nei það snjóar bara stöðugt. Þvílíkt stórir skaflar. En þar sem við búum í svo flottu húsi þá er alltaf búið að ryðja göngustígana snemma á morgnanna.
Við Sigrún kíktum niður í miðbæ í hádeginu, ætluðum að kíkja á útsölu hjá Benetton. Viti menn var bara ekki búið að loka búðinni og tæma hana. Við hefðum kannski átt að kíkja um helgina?
Heyrumst
3.2.03
Arna ritar frá Svíþjóð 10:42 f.h.
Komin mánudagur aftur!
Þetta var ekkert smá skemmtileg helgi. Á föstudagskvöldið var afmælispartý hjá Sigrúnu, svaka stuð. Við fengum svaka góðan mat, gott að drekka og fórum í skemmtilega leiki.
Daginn eftir ætluðum við að gera eitthvað skemmtilegt með Stokkhólmsbúunum Hrönn og Georg. En þar sem ég var búin að panta þvottahúsið gat ég ekki gert neitt fyrr en eftir kl. 4. Svo um eitt leytið hringdi Snævar og sagði að þau væru öll að koma í kaffi til okkar. Þar með var fjöldametið í íbúðinni sprengt. Aldrei verið svo mikið af fólki. Það var svaka gaman hjá okkur, töluðum um Finna-brandara og ýmislegt annað. Svo seinni partinn tóku Hrönn og Georg lestina heim til sín. Í einhverri ferðinni minni niður i þvottahús ákváðu Karvel og Snævar að það yrði elgstunga í matinn hja okkur um kvöldið. En Sigrún var í matarboði annarsstaðar. Þetta var mjög sérstakt, ekki svo mikið bragð heldur var þetta eins og að borða sviðasultu, án þess þó að þetta væri þannig á bragðið. Svo fóru strákarnir út á videoleigu/pizzeríuna okkar og leigðu myndina "Bad Company". Hún var nú svo sem ágæt, dáldið mikið formúlumynd.
Á sunnudeginum fórum við í keilu með Sigrúnu, Snævari, Kristínu og Pálma, en fyrst hittumst við á hamborgarastaðnum MAX. Miklu betri hamborgarar en á Magga dóna og fleiri skyndibitahamborgarastöðum. Það var mjög skemmtilegt i keilu. Jón litli hljóp út um allt með foreldra sína til skiptis á eftir sér. Þar sem við erum nú í Svíþjóð ( ef lesendur hafa ekki ennþá tekið eftir því) þá lokar nefnilega keilusalurinn klukkan 20, þá ákváðuðum við að fara heim til Sigrúnar og Snævars og kynna þau fyrir myndinni Cats and Dogs. Alveg brilliant mynd. En Kristín og Pálmi fóru heim með Jón.
Alveg meiriháttar helgi.
Svo má nú ekki gleyma því að við erum að fara á íshokkýleik á fimmtudaginn. Svíþjóð - Tékkland.
Heyrumst